Ljósaganga gegn ofbeldi

Mynd af Facebook síðu viðburðarins
Mynd af Facebook síðu viðburðarins

How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?

Miðvikudaginn 25. nóvember 2026 fer fram ljósaganga á Akureyri í tilefni 16 daga átaks gegn ofbeldi.

Mæting er á Ráðhústorg klukkan 16:30 en þaðan verður gengið að Amtsbókasafninu þar sem Agnes Blöndal aðstoðarsaksóknari flytur erindi og nemendur frá MA og HA taka þátt.

Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi má rekja aftur til ársins 1991. Tímabil átaksins tengir á táknrænan hátt saman dagana 25. nóvember sem er alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum og 10. desember sem er alþjóðlegi mannréttindadagurinn. Markmið átaksins er að knýja á um afnám alls ofbeldis.

Að göngunni standa Soroptimistaklúbbur Akureyrar, Zontaklúbbur Akureyrar, Zontaklúbburinn Þórunn hyrna og fulltrúar nemenda og stúdenta í MA og HA. Bæjarstjóri Akureyrarbæjar og lögregluþjónar leiða gönguna og á Amtsbókasafninu bíða heitir drykkir og fróðleg erindi.

Skipuleggjendur hvetja íbúa til að taka þátt, mæta með ljós og ganga saman gegn ofbeldi og tekur Eining-Iðja undir það og hvetur sitt félagsfólk til að mæta og taka þátt.

#16days

Nánar um viðburðinn á facebook