Af óviðráðanlegum orsökum verður lokað á skrifstofu félagsins í Fjallabyggð dagana 25. og 26. júní. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.
Minnum á að svarað er í síma 460 3600 á hefðbundnum opnunartíma á skrifstofum félagsins á Akureyri og á Dalvík.
Við minnum félagsmenn einnig á að sækja rafrænt um styrki, bæði úr fræðslusjóði og sjúkrasjóði, og sjúkradagpeninga inn á Mínum síðum Einingar-Iðju, þar inni er einnig pantað eða sótt um og greitt fyrir orlofshús og íbúðir.
Á Mínum síðum Einingar-Iðju má finna hnapp til að senda inn fyrirspurn eða stofna mál.
Einnig er hægt að senda póst og fyrirspurnir á ein@ein.is