Lokum kl. 14 í dag vegna veðurs

Félagsmenn vinsamlega athugið að skrifstofa félagsins á Akureyri lokar kl. 14:00 í dag vegna veðurs og viðvarana Almannavarna. 

Búið er að loka á skrifstofum félgasins á Dalvík og í Fjallabyggð.

Ef veðurspáin gengur eftir þá verður lokað á skrifstofunum á morgun. Spáð er aftakaveðri næsta sólarhringinn. Nú þegar er farið að hvessa og má búast við norðanstórhríð seinnipartinn og fram eftir degi á morgun. Á Akureyri.is eru Akureyringar hvattir til að vera ekki á ferðinni að óþörfu. Skyggni er ekki gott og má búast við að færð spillist innanbæjar. Leitast verður við að moka helstu leiðir bæjarins eins og kostur er. Ef veðrið versnar mikið þá gæti þurft að leggja aðaláherslu á að ryðja fyrir sjúkrabíla og neyðarakstur.