Kjarakönnun félagsins í Mannlega þættinum á Rás 1

Fyrr í vikunni var Tryggvi Jóhannsson, varaformaður félagsins, í viðtali í Mannlega þættinum á Rás 1. Þar var hann fenginn til að segja aðeins frá niðurstöðum kjarakönnunar sem Gallup framkvæmdi undir lok síðasta árs fyrir félagið.

Niðurstöður könnunarinnar sýna m.a. að vaxandi hlutfall félagsmanna hefur þurft að neita sér um læknis- og tannlæknisþjónustu vegna kostnaðar og stór hluti þeirra sem eru með börn á leikskóla er ósáttur við breytingar á opnunartíma og/eða gjaldskrá þeirra og hafa neyðst til að breyta vinnutíma sínum. Þá hefur hlutfall þeirra sem segjast eiga erfitt með að greiða af lánum sínum ekki verið hærra síðan 2019 og yngra fólkið á sífellt erfiðara með að búa sér mannsæmandi líf.

Viðtalið í heild má finna hér.