Meðaltalslaun rúmlega 523 þúsund krónur á mánuði

Undanfarin ár hefur Eining-Iðja fengið Gallup til að gera umfangsmiklar viðhorfs- og kjarakannanir meðal félagsmanna. Þessar kannanir eru sambærilegar könnunum sem nokkur önnur félög innan verkalýðshreyfingarinnar hafa látið gera. Nú liggja fyrir niðurstöður könnunar ársins.

Í könnuninni voru margir þættir kannaðir, m.a. um heildarlaun og dagvinnulaun viðkomandi. 29,2% segjast vera sátt með laun sín miðað við 31,2% í fyrra og 36% árið þar áður. 45,7% eru ósátt miðað við 41,5% í fyrra og 34,9% árið 2017. Fleiri konur en karlar eru ósáttari með launin og eins frekar eldri en þeir sem yngri eru. 

Heildarlaun
Hvað varðar heildarlaun þá voru þau að meðaltali kr. 523.273 í ár miðað við kr. 499.182 í fyrra og kr. 463.297 árið 2017. Meðalhækkun á heildarlaunum á árinu er 4,8%. 

Ef meðal heildarlaun svarenda eru skoðuð milli kynja, þá eru karlmenn með um 561 þúsund krónur en voru í fyrra með um 543 þúsund sem er hækkun um 3,3%. Konurnar eru með um 486 þúsund krónur en í fyrra voru þær með um 453 þúsund sem er hækkun um 7,3%. Hafa ber í huga að samkvæmt könnuninni þá vinna karlar mun meiri yfirvinnu en konur. 

Könnunin leiddi í ljós að á meðal fólks í 100% starfshlutfalli eru konur að jafnaði með um 16,3% lægri heildarlaun heldur en karlar. Meðalheildargreiðslur karla voru rúmar 564 þúsund krónur, en meðalheildargreiðslur kvenna rúmar 472 þúsund krónur. Í fyrra voru sambærilegar tölur 21%, 547 og 432. 

Meðal heildarlaun á Akureyri eru kr. 521.067, sem er hækkun um kr. 22.298 á milli ára. Á Dalvík kr. 534.836, sem er hækkun um kr. 14.058. Í Fjallabyggð kr. 527.893, sem er hækkun um kr. 88.494, og á öðrum stöðum í firðinum eru þau kr. 554.035 sem er hækkun um kr. 45.455. 

Dagvinnulaun
Dagvinnulaunin hafa einnig aukist en þau eru nú að meðaltali kr. 395.065 miðað við kr. 383.433 í fyrra og kr. 364.719 árið 2017. 26,5% eru með 349.000 eða lægra, 64,5% eru með laun á bilinu 350.000 til 499.000 og 9% eru með 500.000 eða meira.

Ef meðal dagvinnulaun svarenda eru skoðuð milli kynja, þá eru karlmenn með kr. 401.600 en voru í fyrra með kr. 383.526, sem er 4,7% hækkun. Konurnar eru með kr. 388.145 en í fyrra voru þær með kr. 383.326, sem er 1,3% hækkun. 

Niðurstöðurnar eru afar gagnlegar fyrir félagið því markmiðið er alltaf að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum félagsmanna, svo sem með því að semja um kaup og kjör og bættan aðbúnað við vinnu. Einnig þarf að gæta þess að áunnin réttindi séu virt. 

Stjórn félagins vill þakka öllum þeim sem þátt tóku í launakönnun félagsins í ár.