Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum 4. mars 2026:
„Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) fordæmir ólögmætt árásarstríð Bandaríkjamanna og Ísraela gegn Írönum. Stórfelldar sprengjuárásir og hernaður þessara ríkja, sem þegar hafa kostað mikinn fjölda óbreyttra borgara lífið, brjóta í bága við alþjóðalög og eru ólíðandi með öllu.
Miðstjórn styður heilshugar ákall Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC) um að hernaðaraðgerðum í Mið-Austurlöndum verði hætt þegar í stað og að teknar verði upp á ný viðræður um friðsamlega lausn deilumála.
Stríð eru aldrei í þágu vinnandi fólks. Almenningur færir jafnan stærstu fórnirnar og ber byrðarnar þegar vopnin loksins þagna og byggja þarf upp samfélag á ný.
Launafólk vill frið, lýðræði og mannsæmandi störf.
Miðstjórn ASÍ minnir á að Íranska þjóðin á skýlausan rétt til að móta eigin framtíð og ákveða hvernig stjórn lands hennar er háttað, með friðsamlegum hætti og án utanaðkomandi afskipta.”