Mínar síður - Að bóka orlofseign

Á Mínum síðum félagsins er alltaf hægt að bóka orlofshús og íbúðir um það bil sex mánuði fram í tímann, fyrir utan tímabilið þegar sumarúthlutun er í gangi. Kerfið virkar þannig að á miðnætti bætist alltaf einn dagur við kerfið sem hægt er að bóka. 

Frá því í byrjun janúar 2026 hafa verið í boði dag- og helgarleigur í öllum orlofskostum félagsins. Um jól, áramót og páska eru einungis vikuleigur í boði.

Til að komast inn á bókunarsíðuna, er smellt á takkann Orlofskerfi sem finna má efst til vinstri á Mínum síðum eða bláa takkann við Full réttindi  í orlofsrammanum á persónublaðinu. 

Hér má finna ýmsar leiðbeiningar fyrir Mínar síður félagsins, m.a. hvernig á að bóka orlofseign