Á Mínum síðum félagsins er alltaf hægt að bóka orlofshús um það bil sex mánuði fram í tímann, fyrir utan tímabilið þegar sumarúthlutun er í gangi. Kerfið virkar þannig að á miðnætti bætist alltaf einn dagur við kerfið sem hægt er að bóka.
Sumartímabil orlofshúsa í ár er frá 30. maí til 5. september og orlofsíbúða frá 4. júní til 3. september. Úthlutunarferli er lokið og er búið að opna fyrir fyrstur pantar og borgar á netinu, fyrstur fær.
Til þessa hefur verið opnað fyrir vetrarleigu þann 1. ágúst ár hvert en með þessu nýja kerfið varð sem sagt breyting þar á.
Um jól, áramót og páska eru einungis vikuleigur í boði í öllum orlofskostum félagsins.
Til að komast inn á bókunarsíðuna, er smellt á takkann Orlofskerfi sem finna má efst til vinstri á Mínum síðum eða bláa takkann við Full réttindi í orlofsrammanum á persónublaðinu. Hér má finna ýmsar leiðbeiningar fyrir Mínar síður félagsins, m.a. hvernig á að bóka orlofseign