Mínar síður nýtt viðmót

Ný forsíða Mínna síðna. Helstu þjónustuþættir félagsins verða aðgengilegir á einum stað og framsetni…
Ný forsíða Mínna síðna. Helstu þjónustuþættir félagsins verða aðgengilegir á einum stað og framsetningin einfaldari en áður.

Fyrr í morgun var tekið í notkun nýtt viðmót á Mínum síðum félagsins. Um leið var innleitt nýtt umsóknarferli fyrir mennta- og sjúkrastyrki og ný vefverslun opnuð.

Búast má við að vefverslunin verði lokuð fyrri hluta dags á meðan unnið er að uppsetningu hennar. Vörur munu síðan birtast þar smám saman.

Á Mínum síðum verður áfram hægt að velja eldra viðmótið. Það á þó ekki við um vefverslunina, en þeirri gömlu var lokað í nótt.

Við þökkum félagsfólki fyrir þolinmæðina á meðan breytingarnar ganga í gegn og hvetjum ykkur til að hafa samband ef þið þurfið aðstoð.

Unnið er að uppfærslu á leiðbeiningum og verða þær settar inn á síðuna jafnóðum og þær verða tilbúnar.

Nánar verður fjallað um breytingarnar síðar í dag