Mínar síður - Þínar upplýsingar rétt skráðar?

Varst þú að skipta um símanúmer, netfang eða banka? Ekki gleyma að setja inn eða uppfæra þínar upplý…
Varst þú að skipta um símanúmer, netfang eða banka? Ekki gleyma að setja inn eða uppfæra þínar upplýsingarnar inn á Mínum síðum Einingar-Iðju

How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?

Eining-Iðja vill vera í góðu sambandi við félagsmenn og því biðjum við ykkur um að skrá eða yfirfara símanúmer og netfang inn á Mínum síðum félagsins. 

Félagið er með rafrænar trúnaðarmannakosningar þar sem hægt er en þá er nauðsynlegt að félagsmenn séu með rétt skráðar upplýsingar á mínum síðum, það er farsíma og netfang. 

Varðandi greiðslu umsókna úr sjúkrasjóði og fræðslusjóði og greiðslu úr Félagsmannasjóði er jafnframt nauðsynlegt að setja bankaupplýsingar inn á Mínar síður Einingar-Iðju. 

Auðvelt er að skrá eða breyta ykkar upplýsingum á persónublaðinu ykkar á Mínum síðum, sjá mynd hér fyrir neðan 

Hægt er að setja inn eða breyta upplýsingum um símanúmer, netfang og bankareikning. ATH! ekki er hægt að sækja um styrki eða orlofshús ef þessar upplýsingar liggja ekki fyrir.

Eru þínar upplýsingar rétt skráðar?

Kannaðu málið á Mínum síðum Einingar-Iðju