Mínar síður - Þínar upplýsingar rétt skráðar?

Varst þú að skipta um símanúmer, netfang eða banka? Ekki gleyma að setja inn eða uppfæra þínar upplý…
Varst þú að skipta um símanúmer, netfang eða banka? Ekki gleyma að setja inn eða uppfæra þínar upplýsingarnar inn á Mínum síðum Einingar-Iðju

Eining-Iðja vill vera í góðu sambandi við félagsmenn og því biðjum við ykkur um að skrá eða yfirfara símanúmer og netfang inn á Mínum síðum félagsins

Félagið er með rafrænar trúnaðarmannakosningar þar sem hægt er en þá er nauðsynlegt að félagsmenn séu með rétt skráðar upplýsingar á mínum síðum, það er farsíma og netfang. 

Varðandi greiðslu umsókna úr sjúkrasjóði og fræðslusjóði og greiðslu úr Félagsmannasjóði er jafnframt nauðsynlegt að setja bankaupplýsingar inn á Mínar síður Einingar-Iðju. 

Auðvelt er að skrá eða breyta ykkar upplýsingum á persónublaðinu ykkar á Mínum síðum (sjá neðra svæði nr. 1 á myndinni hér fyrir neðan) 

  1. Hér eru þínr persónuupplýsingar. Á neðra svæðinu er hægt að setja inn eða breyta upplýsingum um símanúmer, netfang og bankareikning. ATH! ekki er hægt að sækja um styrki eða orlofshús ef þessar upplýsingar liggja ekki fyrir.

Eru þínar upplýsingar rétt skráðar?

Kannaðu málið á Mínum síðum Einingar-Iðju