How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?
Nýlega var tekið í notkun nýtt viðmót á Mínum síðum félagsins. Um leið var innleitt nýtt umsóknarferli fyrir mennta- og sjúkrastyrki og ný vefverslun opnuð.
Með nýju útliti, einfaldara skipulagi og stórbættu símaviðmóti er markmiðið að gera félagsmönnum auðveldara að nýta þá þjónustu og réttindi sem þeim standa til boða. Sérstök áhersla er lögð á að einfalda styrkumsóknir og bæta aðgengi þeirra sem nýta þjónustuna í gegnum farsíma.
Styrkumsóknir skref fyrir skref
Ein umfangsmesta breytingin felst í nýju umsóknarferli um styrki úr sjóðum félagsins. Þar hefur verið lögð áhersla á að gera ferlið skýrara frá upphafi til enda.
Í nýja viðmótinu er félagsmaðurinn leiddur í gegnum umsóknarferlið með skýrum og einföldum hætti. Fyrst er valinn styrkjaflokkur, svo sem heilsa, menntun eða sjúkradagpeningar, og því næst sú styrktegund sem sótt er um.
Þegar styrktegund hefur verið valin birtast upplýsingar um viðkomandi styrk, ásamt yfirliti yfir þau fylgigögn sem þurfa að fylgja umsókninni. Þannig getur félagsmaður kynnt sér skilyrðin og undirbúið nauðsynleg gögn áður en hann heldur áfram.
Í framhaldinu er hægt að hlaða upp fylgigögnum, svo sem greiðslukvittunum, og skrá upplýsingar um þau. Kerfið gerir jafnframt ráð fyrir að félagsmenn geti yfirfarið og uppfært samskipta- og bankaupplýsingar sínar áður en umsóknin er send.
Áður en umsókn er send inn birtist heildaryfirlit yfir skráðar upplýsingar og fylgigögn. Þar getur félagsmaður yfirfarið umsóknina og breytt upplýsingum eftir þörfum. Einnig verður hægt að vista ókláraða umsókn og ljúka henni síðar, til dæmis ef nauðsynleg fylgigögn eru ekki tiltæk þegar byrjað er að fylla hana út.
Með þessu er stefnt að því að draga úr líkum á ófullnægjandi umsóknum og auðvelda afgreiðslu þeirra, bæði fyrir félagsmenn og starfsfólk félagsins.
Hér má finna leiðbeiningar fyrir helstu aðgerðir inni á Mínum síðum félagsins.