Minnsta launaskriðið hjá verkafólki

Haustskýrsla Kjaratölfræðinefndar var kynnt fyrir helgina.

Á vef SGS kemur fram að í skýrslunni komi fram að grunntímakaup á vinnumarkaðinum hækkaði að meðaltali um 18,7% frá febrúar 2024 til júní 2026. Verðlag hækkaði um 12,2% á sama tíma og jókst kaupmáttur grunntímakaups því um 5,8%.

Grunntímakaup verkafólks innan ASÍ hækkaði um 20,6% á tímabilinu, meira en hjá öðrum hópum innan ASÍ á almennum vinnumarkaði. Hækkunin var 21,6% hjá konum og 20,2% hjá körlum. Krónutöluhækkanir kjarasamninganna skiluðu þannig hlutfallslega mestri hækkun til þeirra sem voru með lægstu launin.

Með launaskriði er átt við launahækkanir umfram þær hækkanir sem leiða af kjarasamningum. Verkafólk naut minni slíkra hækkana en aðrir hópar innan ASÍ á almennum markaði. Árlegt meðaltal launaskriðs og óvissu í matinu var 1,7% hjá verkafólki, samanborið við 2,3% hjá verslunarfólki og 2,5% hjá iðn- og tæknifólki. Nefndin tekur fram að greiningin sé frummat og niðurstöðurnar háðar óvissu.