Mjög mikil ánægja með þjónustu og starfsemi félagsins

Nýlega lét félagið, í samstarfi við AFL starfsgreinafélag, Gallup framkvæma könnun um ýmis atriði sem snerta kjör og aðstæður félagsmanna Einingar-Iðju og AFLs starfsgreinafélags. Um er að ræða sambærilega könnun og gerð hefur verið fyrir félögin sl. átta ár. Niðurstöður liggja nú fyrir og má sjá þær hér. Það er alltaf fróðlegt að bera þær saman við niðurstöður síðustu ára og sjá hvort miklar breytingar hafa átt sér stað.

Mikil ánægja er með þjónustu Einingar-Iðju og félagið sjálft. Tæplega 97% svarenda sögðust vera sáttir eða hvorki né er spurt var hvort viðkomandi væri sáttur eða ósáttur við Einingu-Iðju og 97,5% merktu við ánægður eða hvorki né er spurt var hversu ánægður eða óánægður ertu með þjónustu Einingar-Iðju þegar á heildina væri litið. Þetta eru aðeins betri niðurstöður en á síðustu árum. 

64,3% svarenda sögðust hafa nýtt sér einhverja þjónustu hjá félaginu undanfarna 12 mánuði, miðað við um 54% í fyrra.

Í könnuninni voru margir þættir kannaðir, m.a. um heildarlaun og dagvinnulaun, vinnutíma, vinnuálag, launaseðla, kjarasamninga og starfsumhverfi. Einnig var t.d. spurt hversu jákvæður eða neikvæður viðkomandi var gagnvart því að taka þátt í starfi á vegum Einingar-Iðju. Rúmlega 94% svarenda sögðust vera jákvæður eða hvorki né gagnvart þeirri spurningu. Konur eru aðeins jákvæðari en karlar, en um 97% þeirra voru jákvæðar.

Nú var í fyrsta sinn var spurt hversu vel eða illa finnst þér Eining-Iðja standa sig í því að berjast fyrir hagsmunum félagsmanna sinna. 18,8% sögðu mjög vel, 50,7% vel og 24,5% hvorki né.

Könnunin fór þannig fram að 3.000 félagsmenn voru valdir handahófskennt úr félagaskrám þessara tveggja félaga, 1.500 frá hvoru félagi. Það er áríðandi að fá sem nákvæmastar niðurstöður þegar slík könnun er framkvæmd, helst að fá alla til að svara, svo hægt sé að nýta niðurstöðurnar í þágu þekkingar og til hagsbóta fyrir félagsmenn. Þeirra upplýsingar skipta miklu máli! 

Rannsókn sem þessi er afar gagnleg og getur félagið stuðst við niðurstöðurnar á mörgum sviðum. Stjórn félagins vill þakka öllum þeim sem þátt tóku í launakönnun félagsins í ár.