Morgunverðarfundur í beinu streymi

Vert er að minna aftur á að Verðlagseftirlit ASÍ og Neytendasamtökin standa fyrir morgunverðarfundi þriðjudaginn 19. október um samkeppnis- og neytendamál. Fundurinn hefst kl. 8:30 og stendur til kl. - 10:00. Fundurinn fer fram á  á Grand Hótel í Reykjavík, en einnig verður beint streymi af fundinum og hann tekinn upp fyrir þau sem komast ekki á staðinn.

 Smelltu hér til að horfa á streymið (fundurinn hefst kl. 8.30 þann 19. október)

Eru Íslendingar lélegir neytendur? Hvaða áhrif hefur skortur á samkeppni, neytendavernd og eftirliti með viðskiptaháttum á atvinnulíf, viðskipti, verðlag og lífskjör? Er eitthvað sem má betur fara í þessum málum hér á landi? 

Á fundinum verður leitast við að svara þessum spurningum og fleiri. Fjallað verður um hlutverk, stöðu og umhverfi þeirra opinberu stofnanna og félagasamtaka sem fara með samkeppnis- og neytendamál hér á land og áherslur stjórnvalda í því samhengi. Einnig verður fjallað um fyrirkomulag þessara mála í nágrannalöndunum. 

Á fundinum verða nokkur styttri erindi og pallborð. Í pallborði verða fulltrúar frá Samkeppniseftirlitinu, Neytendasamtökunum, Samtökum verslunar og þjónustu, Neytendasamtökunum og verkalýðshreyfingunni. 

 

 

Dagskrá

8.30 - 8.40

Samkeppni, fjórða iðnbyltingin og vinnumarkaðurinn
Auður Alfa Ólafsdóttir, verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ

8.40 - 8.55

Neytendavernd á norðurlöndunum
Daði Ólafsson, sérfræðingur hjá atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytinu

8.55 - 9.10

Af hverju samkeppniseftirlit?
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins

9.10 - 9.25

Sókn í stað samþjöppunar
Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands

9.30 - 10.00

Pallborðsumræður

 

 

Í pallborði verða:

  • Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins
  • Þórunn Anna Árnadóttir, forstjóri Neytendastofu
  • Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna
  • Andrés Magnússon, framkvæmdastjór Samtaka verslunar og þjónustu
  • Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.