Morgunverðarfundur um ofbeldi í nánum samböndum og vinnumarkaðinn

Í tilefni af 8. mars standa ASÍ, BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands fyrir morgunverðarfundi um ofbeldi í nánum samböndum og vinnumarkaðinn. 

Fundurinn fer fram á morgun, fimmtudaginn 5. mars, milli kl. 9:00 og 10.30 á Hilton Reykjavík Nordica v. Suðurlandsbraut. Einnig verður boðið upp á að sjá fundinn í beinu streymi í gegnum Facebook.

Ofbeldi í nánum samböndum eru algeng og alvarleg brot sem hafa margþættar afleiðingar fyrir brotaþola og samfélagið allt. Þrátt fyrir mikla umræðu um kynbundið ofbeldi hefur samhengið á milli vinnumarkaðar og ofbeldis í nánum samböndum ekki fengið athygli hér á landi. 

Síðustu ár hefur verið töluverð þróun erlendis sem snýr að því að veita þolendum ýmis réttindi á vinnumarkaði, svo sem launað leyfi og vernd frá uppsögnum. Dæmi eru um fyrirtæki hér á landi sem hafa slíkar stefnur, en hér er engin löggjöf eða ákvæði í kjarasamningum sem taka á málinu. 

Á málþinginu verður fjallað um eðli og birtingarmyndir ofbeldis í nánum samböndum og hversu mikilvægt er að vinnumarkaðurinn beini sjónum sínum að málefninu. Þá verður fjallað um alþjóðlega þróun og um hvað stjórnvöld, aðilar vinnumarkaðarins og einstakir vinnustaðir hér á landi geta gert til þess að styðja við þolendur ofbeldis í nánum samböndum. 

Dagskrá: 
Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, fjallar um ofbeldi í nánum samböndum og birtingarmyndir þess. 

Dagný Aradóttir Pind, lögfræðingur BSRB, fjallar um alþjóðlega þróun, löggjöf og kjarasamninga og hvaða aðgerða er þörf á að grípa til hér á landi. 

Á eftir erindum verður pallborð með Lindu, Dagnýju og Adriönu Karolinu Pétursdóttur, formanni Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi og framkvæmdastjóra mannauðs Rio Tinto á Íslandi. 
Jenný Kristín Valberg, teymisstýra í Bjarkarhlíð, stýrir málþinginu.