Neyðarkallinn mættur á svæðið

Neyðarkallinn 2026 er mættur í hús. Það er félaginu bæði ljúft og skylt að styðja við bakið á því frábæra og óeigingjarna fólki sem styður við okkur öll þegar við þurfum á að halda.

Hægt er að kaupa stóra Neyðarkallinn með því að senda Súlum björgunarsveit skilaboð á Facebook eða póst á varaformadur@sulur.is

Sala á neyðarkallinum hófst í gær  en neyðarkall björgunarsveita ár hvert er eitt af stóru fjáröflunarátökum þeirra og skiptir gríðarlega miklu máli í rekstri þeirra.

Neyðarkallinn í ár er fjáraflarinn en næstu daga munu sjálfboðaliðar björgunarsveita og slysavarnadeilda um land allt bjóða neyðarkallinn til sölu. Í ár fagnar neyðarkallinn 20 ára afmæli og er hann tileinkaður þeim þúsundum sjálfboðaliða sem hafa staðið vaktina í fjáröflun fyrir björgunarsveitir og slysavarnadeildir um allt land undanfarna tvo áratugi.

Hagnaður af sölunni rennur til björgunarsveita og slysavarnadeilda og er hann notaður til að efla og styrkja starfið. Í gegnum tíðina hefur almenningur haft mikinn skilning á störfum björgunarsveita enda veit fólk að þegar neyðarkall berst bregðast þær hratt við með allan sinn mannskap, búnað, tækni og þekkingu.