Í október og nóvember sl. lét félagið, í samstarfi við AFL starfsgreinafélag, Gallup framkvæma könnun um ýmis atriði sem snerta kjör og aðstæður félagsmanna Einingar-Iðju og AFLs starfsgreinafélags. Um er að ræða sambærilega könnun og gerð hefur verið fyrir félögin sl. 15 ár. Niðurstöður voru kynntar á stjórnarfundi í gær og má sjá þær hér. Það er alltaf fróðlegt að bera þær saman við niðurstöður síðustu ára og sjá hvort miklar breytingar hafa átt sér stað.
Mikil ánægja með þjónustu félagsins og félagið sjálft
Áfram er mikil ánægja með þjónustu Einingar-Iðju og félagið sjálft. 96,9% svarenda sögðust vera sáttir eða hvorki né er spurt var hvort viðkomandi væri sáttur eða ósáttur við Einingu-Iðju, þar af merktu rétt um 79,2% við að þau væru sátt við félagið. 97,6% merktu við ánægður eða hvorki né er spurt var hversu ánægður eða óánægður ertu með þjónustu Einingar-Iðju þegar á heildina væri litið, þar af voru 78,5 ánægðir.
Þegar spurt var hversu vel eða illa finnst þér Eining-Iðja standa sig í því að berjast fyrir hagsmuni félagsmanna sinna sögðu 79,9% svarenda við Mjög vel eða frekar vel, 16,2% sögðu hvorki né.
Þá sögðust 73,6% svarenda hafa notað Mínar síður miðað við 66,7% árið þar á undan og 58,7% á árinu 2023.
Í könnuninni voru margir þættir kannaðir, m.a. um heildarlaun og dagvinnulaun, vinnutíma, vinnutímastyttingu, fjárhagslega stöðu, trúnaðarmenn og Mínar síður félagsins.
Könnunin fór þannig fram að 6.000 félagsmenn voru valdir handahófskennt úr félagaskrám þessara tveggja félaga, 3.000 frá hvoru félagi. Það er áríðandi að fá sem nákvæmastar niðurstöður þegar slík könnun er framkvæmd, helst að fá alla til að svara, svo hægt sé að nýta niðurstöðurnar í þágu þekkingar og til hagsbóta fyrir félagsmenn. Þeirra upplýsingar skipta miklu máli!
Rannsókn sem þessi er afar gagnleg og getur félagið stuðst við niðurstöðurnar á mörgum sviðum. Stjórn félagsins vill þakka öllum þeim sem þátt tóku í viðhorfs- og kjarakönnun félagsins.