NTV skólinn – námskeið á ensku, pólsku og íslensku

NTV skólinn, í samstarfi við Landsmennt, Sveitamennt og Ríkismennt býður félagsmönnum aðildarfélaga sjóðanna upp á Skrifstofuskóla NTV í fjarnámi á ensku, pólsku og íslensku. Einnig verður námskeiðið Bókhald grunnur boðið samhliða.

Námskeiðin eru á tilboðsverði til félagsmanna og styrkt að auki með einstaklingsstyrkjum, sem eru 90% eða að hámarki kr. 130.000,-.

Námskeiðunum verður skipt í tvo hluta, „Skrifstofuskóli NTV – Grunnur“, 9 vikna námskeið sem verður í boði á haustönn 2021 og „Skrifstofuskóli NTV – Framhald“, 6 vikna námskeið sem haldið verður í byrjun næsta árs. Aðilar sem taka grunnnámskeiðið, sem er með áherslu á tölvufærni og almenna skrifstofufærni, hafa val um að skrá sig á framhaldsnámskeið eftir áramótin, sem verður með áherslu á bókfærslu og reikningshald. 

NTV býður námskeiðin á sérstöku tilboðsverði og stefnt er að því að þau hefjist 18. október nk. 

Námskeið

Tungumál 

Vikur 

Tilboðsverð       

Byrjar             

Lýkur 

Skrifstofuskóli NTV – Grunnur

Íslenska 9

149.000 

18.10.21 17.12.21

Skrifstofuskóli NTV – Grunnur

Enska

9

149.000 

18.10.21

17.12.21

Skrifstofuskóli NTV – Grunnur

Pólska

9

149.000 

18.10.21

17.12.21

Bókhald grunnur

Íslenska 7

149.000 

18.10.21

03.12.21

 

Nánari lýsingu á námskeiðunum og skráningar: