How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?
Í samræmi við reglur Landsmenntar tóku í gildi frá og með 1. ágúst sl. nýjar reglur um styrki til fræðslusafna og stafrænnar fræðslu hjá Ríkismennt og Sveitamennt. Samkvæmt breytingunum verða öll upptekin fræðsla, svo sem myndbönd og annað stafrænt margmiðlunarefni, auk fræðslusafna og fræðsluappa, styrkt um 50% af reikningi í stað 90% líkt og verið hefur.
Á móti breytingunni er umsóknarferlið einfaldað. Framvegis þarf einungis að skila inn grunngögnum með umsókn og ekki lengur gerð krafa um innleiðingaráætlun, fræðsluáæltun eða greinargerð eins og áður.