Ný skýrsla frá Kjaratölfræðinefnd kynnt á morgun

Vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar verður kynnt í húsakynnum ríkissáttasemjara á morgun, föstudaginn 13. júní,  kl. 9.00. Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ og Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA munu ávarpa fundinn auk þess sem Hrafnhildur Arnkelsdóttir formaður KTN og Arnaldur Sölvi Kristjánsson sérfræðingur nefndarinnar fara yfir helstu niðurstöður skýrslunnar. Einnig verður streymt frá viðburðinum á vef Kjaratölfræðinefndar.

Í skýrslunni er umfjöllun um launaþróun á almennum og opinberum vinnumarkaði  og kjarasamninga sem gerðir hafa verið í yfirstandandi kjarasamningslotu. Einnig er í skýrslunni að finna umfjöllun um launastig,  samsetningu launa og launadreifingu árið 2024 auk umfjöllunar um íslenskan vinnumarkað, þróun efnahagsmála og kaupmáttarþróun.   

Kjaratölfræðinefnd er samstarfsnefnd ríkis, sveitarfélaga og heildarsamtaka á vinnumarkaði um gerð og hagnýtingu talnaefnis um laun og efnahag til undirbúnings og eftirfylgni með kjarasamningum. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar frá Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, BSRB, Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins, forsætisráðuneyti, félags- og vinnumálamálaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, og Hagstofu Íslands.