Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur gefið út viðmið fyrir útboð ræstinga ríkisins. Markmið þeirra er að stuðla að auknu gagnsæi, samræmi og gæðum við útboð ríkisins. Jafnframt er þeim ætlað að efla ábyrg innkaup sem byggjast á raunhæfum kostnaðarforsendum og taka mið af kjarasamningsbundnum réttindum starfsfólks.
Tryggvi Jóhannsson, formaður Einingar-Iðju, sat í starfshóp Eflingar, SGS og SA um æskilegar útboðsaðferðir ræstingarþjónustu. Hann fagnar þessum nýju viðmiðum og segir það jákvætt og mikilvægt skref í átt að ábyrgari útboðum þar sem betur er staðið vörð um kjör og starfsaðstæður ræstingarfólks. "Við fögnum því líka að ráðuneytið hafi haft virkt samráð við stéttarfélögin í þessari vinnu. Mjög mikilvægt er að nú er lögð áhersla á að kostnaðaráætlanir byggist á raunhæfum forsendum og þeim kjörum sem kjarasamningar kveða á um og að uppmæling fari fram áður en tilboð eru opnuð. Mikilvægt er að því sé fylgt fast eftir að óeðlilega lágum tilboðum sem ekki samræmast gildandi kjarasamningum sé vísað frá."
Drög að viðmiðunum voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í júlí síðastliðnum. Alls bárust sex umsagnir, meðal annars frá Eflingu, Starfsgreinasambandi Íslands, ASÍ og Samtökum atvinnulífsins. Farið var yfir umsagnirnar og tekið tillit til ábendinga við lokafrágang viðmiðanna. Einnig var haft samráð við fulltrúa launafólks og ræstingafyrirtækja.
Viðmiðin taka til undirbúnings ræstingaútboða, meðal annars með uppmælingum stærri verkefna, auk þess sem þau fjalla um skyldur bjóðenda gagnvart starfsfólki og eftirfylgni með samningum.
Viðmiðin koma til viðbótar við innkaupastefnu ríkisins og þær áherslur sem þar koma fram um vistvæn, hagkvæm, nýskapandi og gagnsæ innkaup. Þau styðja jafnframt við framkvæmd laga um opinber innkaup.
Viðmiðin eru leiðbeinandi og verður beitt við ræstingaútboð ríkisins. Reynslan af notkun þeirra verður nýtt við frekari umbætur og þróun viðmiðanna.