Nýir kauptaxtar komnir á netið

Nýir kauptaxtar sem gilda fyrir almenna markaðinnog sveitarfélög frá 1. apríl nk. eru komnir á vefinn. Þá má nálgast hér. Kauptaxtar fyrir ríkið eru væntanlegir á vefinn fljótlega.

Eins og greint var frá á vef félagsins sl. föstudag þá hittust forsendunefnd ASÍ og SA ,sem starfar samkvæmt kjarasamningum, og ræddu hagvaxtarauka kjarasamninga. Landsframleiðsla jókst á mann um 2,53% á síðasta ári. Þetta hefur þá þýðingu að hagvaxtarauki kjarasamninga hefur virkjast í fjórða þrepi.

Forsendunefnd ASÍ og SA hefur ákveðið að hagvaxtaraukinn komi til greiðslu 1. maí líkt og kveðið er á um í samningum. Launataxtar munu hækka um 10.500 kr. og almenn laun um 7.875 kr. frá 1. apríl og koma til greiðslu 1. maí. Sjá nánar hér