Frá og með deginum í dag er Tryggvi Jóhannsson tekinn við sem formaður Einingar-Iðju. Hann er fullur tilhlökkunar að taka við félaginu. "Ég hlakka til samstarfsins við félagsmenn við að gera okkar góða félag enn betra."
Eins og fram koma hér á síðunni sl. föstudag þá var sá dagur síðasti formlegi vinnudagurinn hennar Önnu Júlíusdóttur hjá félaginu. Anna tilkynnti á aðalfundi félagsins í apríl að hún hefði tekið þá ákvörðun að láta af störfum hjá félaginu frá og með 1. júní nk. bæði sem starfsmaður sem og formaður. Þá sagði hún m.a. að í lögum félagsins er það þannig að varaformaður tekur við formennskunni og ný stjórn félagsins mun svo taka ákvörðun um hver tekur að sér hlutverk varaformanns.
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar sem fram fór nýlega var samþykkt samhljóða að Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir myndi taka að sér hlutverk varaformanns. Elsa Hrönn mun hefja störf hjá félaginu á morgun.
Tryggvi var kjörinn varaformaður félagsins 2024 en hafði setið sem starfandi varaformaður frá árinu 2023. Hann hefur setið í stjórn félagsins frá 2017, en þá kom hann inn í hana sem nýr formaður Matvæla- og þjónustudeildar. Áður en hann tók við sem formaður deildarinnar hafði hann setið sem varaformaður hennar frá árinu 2014, ritari frá árinu 2012 og meðstjórnandi frá árinu 2008.