Nýr kjarasamningur við Bændasamtök Íslands

Starfsgreinasamband Íslands og Bændasamtök Íslands skrifuðu undir nýjan kjarasamning 31. maí sl. um kaup og kjör starfsmanna sem vinna almenn landbúnaðarstörf. Auk þess falla ráðskonur/matráðar á bændabýlum undir samninginn. Samningurinn nær ekki til þeirra starfsmanna sem starfa við ferðaþjónustu eða aðra starfsemi sem fellur ekki undir ofangreinda skilgreiningu. Starfsmenn, sem starfa við ferðaþjónustu í smærri stíl, geta þó fallið undir gildissvið samningsins enda sé það samþykkt af hálfu viðkomandi stéttarfélags.

Samningurinn gildir frá 1. apríl 2019 til 1. nóvember 2022 og byggir á kjarasamningi SGS og SA sem undirritaður var 3. apríl síðastliðinn. Allir launaliðir samningsins taka breytingum í samræmi kjarasamning SGS og SA.

Engar breytingar eru á þeim þáttum samningsins sem snúa að ákvæðum um vinnutíma, starfsaldurstengdar launahækkanir eða önnur sérákvæði samningsins. Minnt er á að skylt er að gera skriflega ráðningarsamninga innan mánaðar frá ráðningu, enda standi ráðning starfsmanns lengur en einn mánuð. Breytingar á ráðningarkjörum skal staðfesta með sama hætti.

Samninginn má finna í heild sinni hér.