Nýr kjarasamningur við Landsamband smábátaeiganda og Samband smærri útgerða

Hér má sjá við undirritun samningsins talið frá vinstri; Axel Helgason, formaður LS, Flosi Eiríksson…
Hér má sjá við undirritun samningsins talið frá vinstri; Axel Helgason, formaður LS, Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri SGS, Magnús S. Magnússon, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Sandgerðis, Bárður Guðmundsson, formaður SSÚ, og Örn Pálsson, framkvæmdastjóri LS. Myndin er fengin af vef SGS, www.sgs.is

Undirritaður hefur verið nýr kjarasamningur um ákvæðisvinnu við línu og net. Samningurinn er milli Starfsgreinasambands Íslands annars vegar og Landssambands smábátaeigenda og Samtaka smærri útgerða hins vegar. 

Samningurinn gildir frá 1. apríl 2019 til 1. nóvember 2022.

Launabreytingar í samningnum taka mið af Lífskjarasamningi Samtaka atvinnulífsins, verkalýðshreyfingarinnar og stjórnvalda.

Hlekk á samninginn má finna hér að neðan.

KjarasamningurSGS_LS_2019