Nýlega var ákveðið að skipta úr rafmagnspotti sem sem staðið hefur vaktina í Tjarnargerði í Eyjafjarðarsveit síðan sumarið 2017. Fyrr í vikunni var farið með nýjan rafmagnspott og var hann hífður á pallinn við orlofshúsið.
Nú stendur yfir vinna við að tengja nýja pottinn og ætti hann að vera tilbúinn á morgun til notkunar fyrir félagsmenn sem eiga eftir að dvelja í þeirri paradís sem Tjarnargerði er.