Nýr starfsmaður hóf störf í dag

Ríkarð var ráðinn úr hópi 23 umsækjanda sem sóttu um starf Verkefnastjóra vinnustaðaeftirlits fyrir …
Ríkarð var ráðinn úr hópi 23 umsækjanda sem sóttu um starf Verkefnastjóra vinnustaðaeftirlits fyrir Eyjafjarðarsvæðið og Norðurland vestra.

Ríkarð Svavar Axelsson hóf störf hjá félaginu í dag. Hann var ráðinn úr hópi 23 umsækjanda sem sóttu um starf Verkefnastjóra vinnustaðaeftirlits fyrir Eyjafjarðarsvæðið og Norðurland vestra. Hann verður með aðsetur á Akureyri og er með netfangið rikki@ein.is

Eining-Iðja býður Ríkarð velkominn til starfa hjá félaginu.

Nánar um starfið
Nokkur stéttarfélög sem eru starfandi í Eyjafirði og á Norðurlandi vestra gerðu með sér samkomulag árið 2016 um stóraukið vinnustaðaeftirlit með því að ráða einn sameiginlegan starfsmann fyrir svæðið. Ríkarð tekur við starfinu af Vilhelm sem gegnt hefur því frá upphafi og mun starfa fyrir 11 stéttarfélög, hann verður með aðsetur á skrifstofu Einingar-Iðju á Akureyri en skipuleggur og fer í vettvangsferðir á vinnustaði á samningssvæðinu sem er Eyjafjörður, Skagafjörður og Húnavatnssýslur.

Markmið vinnustaðaskírteina og eftirlits á vinnustöðum er að tryggja að atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum. Samráðsnefnd ASÍ og SA hefur veitt sérstökum eftirlitsfulltrúum heimild til að annast eftirlit og hafa þeir rétt skv. l. nr. 42/2010 til aðgangs að vinnustöðum og heimild til að krefja atvinnurekanda og launamenn hans um að sýna vinnustaðaskírteini. Skulu þeir skrá niður upplýsingar og senda áfram til opinberra aðila s.s. RSK og Vinnumálastofnunar.