Nýr starfsmaður hóf störf í dag

Magnús Smári Smárason hóf störf hjá félaginu í dag. Hann var ráðinn úr hópi 12 umsækjanda sem sóttu um stöðu lögfræðings og þjónustufulltrúa hjá félaginu. 

Hann verður með aðsetur á skrifstofu félagsins á Akureyri og er með netfangið magnus@ein.is

Eining-Iðja býður Magnús Smára velkominn í starfsmannahópinn.