Nýr varaformaður hóf störf í dag

Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir hóf störf hjá félaginu í dag sem varaformaður Einingar-Iðju. 

Anna fyrrum formaður tilkynnti á aðalfundi félagsins í apríl að hún hefði tekið þá ákvörðun að láta af störfum hjá félaginu frá og með 1. júní bæði sem starfsmaður sem og formaður. Þá sagði hún m.a. að í lögum félagsins er það þannig að varaformaður tekur við formennskunni og ný stjórn félagsins mun svo taka ákvörðun um hver tekur að sér hlutverk varaformanns.

Eftir að ljóst varð að Tryggvi yrði formaður Einingar-Iðju ákvað  aðalstjórn félagsins að Elsa Hrönn yrði varaformaður í hans stað.

Hún verður með aðsetur á skrifstofunni á Akureyri og er með netfangið elsahronn(hjá)ein.is 

Eining-Iðja býður Elsu Hrönn velkomna í starfsmannahópinn.