NÝTT - Dag- og helgarleigur í boði á Höfuðborgarsvæðinu

Félagið hefur ákveðið  að vera með sveigjanlegri leigutíma í íbúðum félagsins á Höfuðborgarsvæðinu. Frá 5. janúar 2026 verða því í boði dag- og helgarleigur, eins og er í orlofshúsum félagsins.

Félagsmenn geta á Mínum síðum alltaf bókað orlofskosti félagsins um það bil sex mánuði fram í tímann, fyrir utan tímabilið þegar sumarúthlutun er í gangi. Þannig að nú þegar er hægt að bóka dag- og helgarleigur fyrir sunnan, en bara leigur sem hefjast efir 5. janúar nk.

Á sumrin, um jól, áramót og páska verður eftir sem áður einungis vikuleigur í boði í öllum orlofskostum félagsins. 

Hér má finna ýmsar leiðbeiningar fyrir Mínar síður félagsins, m.a. hvernig á að bóka orlofseign