Nýtt í Hlaðvarpi ASÍ - Palestínuferðin

Í síðustu viku fór 20 manna hópur frá Alþýðusambandinu, m.a. Anna Júlíusdóttir, varaformaður Einingar-Iðju, í stutta ferð til Palestínu til að kynnast af eigin raun aðstæðum vinnandi fólks á svæðinu. Í ferðinni voru haldnir fjölmargir fundir m.a. með verkalýðsfélögum, fulltrúum úr atvinnuvegaráðuneyti Palestínu, góðgerðarfélögum og læknum auk þess sem farið var inn í Balata flóttamannabúðirnar í Nablus. 

Hér er rætt við Drífu Snædal forseta ASÍ og Halldór Oddsson lögfræðing um ferðina. 

Smella hér til að hlusta (Lengd 22:13)