NÝTT - Íbúð á Spáni fyrir félagsmenn

Mynd frá svæðinu Playa Flamenca á Spáni fengin að láni af Tripadvisor. Á innfelldu myndinni má sjá í…
Mynd frá svæðinu Playa Flamenca á Spáni fengin að láni af Tripadvisor. Á innfelldu myndinni má sjá íbúðakjarnann sem íbúðin er í. Von er á betri myndum af svæðinu og íbúðinni á allra næstu dögum.

Eining-Iðja hefur tekið á leigu íbúð á Spáni til að nota sem orlofskost fyrir félagsmenn á tímabilinu 1. janúar til 1. desember 2026.

Um er að ræða virkilega falleg íbúð á góðum stað í Playa Flamenca á Spáni. Íbúðin er í lokuðum íbúðakjarna og samanstendur af tveimur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Hægt er að aka inn í kjarnann á tveimur stöðum inn um rafmagnshlið. Bílastæði eru innan kjarnans og hafa íbúar einnig aðgang að sameiginlegri sundlaug. Staðsetningin er góð en stutt er alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Sundlaugabarinn vinsæli þar sem íslendingar hittast alla föstudaga er í aðeins 10 mínútna göngufæri. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Þegar komið er að húsinu er gengið upp stiga á læstar svalir og þaðan er farið inn í íbúðina. Gengið er inn í alrými þ.e. stofu/borðstofu og eldhús. Á hægri hönd eru svo tvö svefnherbergi, bæði með góðum innbyggðum skápum. Baðherbergi er inn af öðru herberginu en einnig er annað baðherbergi með þvottavélaaðstöðu og sturtu. Loft í baðherbergjum eru niðurtekin með innbyggðum Led ljósum. Inn af eldhúsinu er svo útgengt á lítinn pall en þaðan er hringstigi upp á mjög rúmgott sólþak þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Eldhúsið er með öllum nýjustu tækjum, tvöföldum Samsung ísskáp og öllu leirtaui. Loftkæling er í íbúðinni.

Hægt verður að leigja eina eða tvær samfelldar vikur. Leiguverð per. viku er kr. 50.000, en einnig þarf að skilja eftir við brottför þrifagjald að upphæð 150 evrur. Innifalið í leigu er lín, handklæði, rafmagn og net.

Nánari upplýsingar og betri myndir eru væntanlegar á allra næstu dögum og þá verður hægt að bóka íbúðina sex mánuði fram í tímann inn á Mínum síðum félagsins.