NÝTT- rúmföt í boði á Höfuðborgarsvæðinu

Vert er að benda félagsmönnum á þá nýjung að nú eru í boði rúmföt í íbúðum félagsins á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. það þarf EKKI að taka með sér sængurlín og lök þegar farið er í íbúðir félagsins á Höfuðborgarsvæðinu.

Við brottför þarf að taka af rúmum og skilja eftir í þvottakörfu inni í þvottahúsi eða á baðherbergi. (Ef gleymist að taka af rúmum má búast við aukagjaldi)

Dag- og helgarleigur í boði
Einnig er vert að minna aftur á að félagið ákvað nýlega  að vera með sveigjanlegri leigutíma í íbúðum félagsins á Höfuðborgarsvæðinu. Frá því í byrjun janúar hafa verið í boði dag- og helgarleigur, eins og er í orlofshúsum félagsins. 

Á sumrin, um jól, áramót og Páska verður eftir sem áður einungis vikuleigur í boði í öllum orlofskostum félagsins. 

Félagsfólk geta á Mínum síðum alltaf bókað orlofskosti félagsins um það bil sex mánuði fram í tímann, fyrir utan tímabilið þegar sumarúthlutun er í gangi. 

Hér má finna ýmsar leiðbeiningar fyrir Mínar síður félagsins, m.a. hvernig á að bóka orlofseign