Opið fyrir orlofshúsaumsóknir og Orlof að eigin vali

Í dag kl. 10 var opnað fyrir umsóknir vegna úthlutunar orlofshúsa og íbúða félagsins næsta sumar sem og Orlofs að eigin vali. Félagsmenn þurfa að sækja um sumarvikur og orlof að eigin vali á rafrænan hátt í gegnum Orlofsvef félagsins  þar sem jafnframt má finna upplýsingar um hvað er í boði.

Síðasti skiladagur umsókna er föstudagurinn 21. apríl, úthlutun fer fram nokkrum dögum síðar.

Verðskrá

  • Þeir sem fá úthlutað þurfa að ganga frá greiðslu í síðasta lagi 2. maí 2023.
  • 5. maí 2023 kl. 10:00 verður opnað á netinu fyrir það sem enn verður laust. Þá gildir fyrstur kemur, fyrstur fær. Einnig verður hægt að hafa samband við skrifstofur félagsins til að fá upplýsingar um lausar vikur. 

Punktakerfi
Til þess að gæta sem mestrar sanngirni við úthlutun orlofshúsa og orlofsíbúða notar félagið punktakerfi sem þykir hafa reynst vel. Hver félagsmaður vinnur sér inn einn punkt fyrir hvern mánuð sem hann greiðir til félagsins. Engu máli skiptir hve há upphæð félagsgjaldsins er í hverjum mánuði. Þeir sem síðan hafa safnað flestum punktum þegar kemur að úthlutun ganga fyrir þegar mikil ásókn er í húsin. Þegar félagsmaður fær úthlutað tíma í orlofshúsi dregst tiltekinn punktafjöldi frá inneign viðkomandi þannig að tryggt er að þeir sem fá úthlutað dvöl í orlofshúsi eru ekki áfram efstir á blaði, en halda þó auðvitað áfram að safna sér punktum fram að úthlutun næsta árs með því að greiða félagsgjöld.

ATH! Við afbókun fæst inneign. sem hægt er að nýta síðar. Einungis er endurgreitt vegna veikinda, andláts eða vegna óveðurs/ófærðar skv. viðvörun Veðurstofu Íslands.

Frádráttur orlofspunkta er mismunandi eftir tímabilum og eftir því hvað er leigt. Ekki eru dregnir frá punktar að vetri til.

  • 18 punktar í frádrátt:
    • Fyrir Orlof að eigin vali.
  • 24 punktar í frádrátt:
    • Fyrir fyrstu tvær og síðustu sumarvikuna.
  • 36 punktar í frádrátt:
    • Fyrir aðrar sumarvikur