Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

Vert er að minna aftur á að Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til rannsókna og útgáfu verkefna sem varða sérstaklega íslenskan vinnumarkað, hagsmuni launafólks og starfsemi verkalýðshreyfingarinnar.

Hámarksfjárhæð einstakra styrkja er 1 milljón króna. Umsóknir um styrkinn þurfa að berast fyrir morgundaginn, 15. apríl, en úthlutað er úr sjóðnum 1. maí ár hvert.

Nánari upplýsingar um minningarsjóðinn og umsóknareyðublað