Opnað kl. 12 fyrir laus orlofshús og íbúðir

Í dag, mánudaginn 13. apríl, kl. 12.00, opnar fyrir laus orlofshús og íbúðir í sumar.

Þá geta félagsmenn farið inn á Mínar síður og séð lausar vikur og orlofskosti í sumar. Nú gildir reglan, fyrst panta og borga, fyrst fá.

Einnig verður hægt að hafa samband við skrifstofur félagsins til að fá upplýsingar um lausar vikur. 

Sjá nánar á Mínum síðum félagsins