Orlofsblaðið er komið á netið

Nú er verið að prenta og ganga frá orlofsblaði félagsins og verður það borið út næsta miðvikudag með Dagskránni á öll heimili á svæðinu. Sumir munu reyndar fá blaðið sent til sín með póstinum.

Í blaðinu, sem er 28 síður, er fjallað er um þá orlofsmöguleika sem félagsmönnum standa til boða á árinu 2020, en megináhersla er lögð á að kynna þau orlofshús og orlofsíbúðir sem félagið hefur til umráða og leigu til félagsmanna á komandi sumri. Sem fyrr býður félagið hús og íbúðir af mismunandi stærðum og gerðum, í mismunandi umhverfi og í öllum landshlutum.

Í blaðinu er einnig sagt frá nýjum orlofshúsavef félagsins sem var verið að taka í notkun. Þá má líka t.d. finna umfjöllum um aðalfundi deilda, viðbrögð vegna COVID-19 og margt fleira.

Blaðið er komið á netið og má lesa það hér.

Þeir sem fá dagskránna inn um lúguna hjá sér miðvikudaginn 18. mars nk. en ekki félagsblaðið eiga að hafa samband við Ásprent í síma 4 600 700 og láta vita.