Orlofsblaðið er komið á netið

Orlofsblað félagsins er komið á netið og má lesa það hér.

Blaðið er einungis gefið út rafrænt að þessu sinni en í því er fjallað um þá orlofsmöguleika sem félagsmönnum standa til boða á árinu 2024, en megináhersla er lögð á að kynna þau orlofshús og orlofsíbúðir sem félagið hefur til umráða og leigu til félagsmanna á komandi sumri. Sem fyrr býður félagið hús og íbúðir af mismunandi stærðum og gerðum, í mismunandi umhverfi og í öllum landshlutum.