Vert er að benda félagsfólki á að nú eru einungis eftir lausar vikur í sumar í ágúst í orlofshúsum og íbúðum félagsins.
Einnig að eftir að nýja félaga- og orlofskerfið var tekið í notkun er ekki lengur um sérstaka vetrarleigu orlofshúsa að ræða. Nú er alltaf hægt að bóka orlofshús eða íbúð um það bil sex mánuði fram í tímann, fyrir utan tímabilið þegar sumarúthlutun er í gangi.
Kerfið virkar þannig að á miðnætti bætist alltaf einn dagur við kerfið sem hægt er að bóka. Áður var opnað fyrir vetrarleigu þann 1. ágúst ár hvert en með nýja kerfinu varð sem sagt breyting þar á.
Áhugasamir geta því kíkt núna á bókunarsíðuna, bókað og greitt fyrir hús eða íbúð. Leigja má íbúðir og hús sex mánuði fram í tímann, sami aðili má skrá sig fyrir allt að sjö gistinóttum á íbúð og sjö gistinóttum á hús á næstu sex mánuðum.
Um jól, áramót og páska eru einungis vikuleigur í boði í öllum orlofskostum félagsins.