Orlofsréttur

How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?

Allt starfsfólk á rétt á orlofi, það er leyfi frá störfum í tiltekinn fjölda daga auk orlofslauna sem reiknast af öllum launum.

Reglur um orlof er að finna í orlofslögum og kjarasamningum.

Orlofslögin kveða m.a. á um lágmarksorlof, ákvörðun orlofstöku og útgreiðslu orlofslauna en kjarasamningar hafa að geyma ákvæði um orlof umfram lágmarksorlof, hvernig það skiptist í sumar- og vetrarorlof, veikindi í orlofi o.fl.

Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um orlofsréttindi félagsmanna eftir kjarasamningum.

Almenni markaðurinn - Kjarasamningur SGS og SA

Orlofsávinnsla frá 1.5. 2025 sem kemur til töku á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2026 er eftirfarandi skv. kjarasamningi SGS og SA: 

Lágmarksorlof á almennum vinnumarkaði eru 24 virkir dagar. Orlofslaun eru 10,17% af öllum launum.

Eftir 22 ára aldur og 6 mánaða starf fær starfsfólk 25 daga orlof og 10,64% orlofslaun.

Eftir 5 ár í sama fyrirtæki fær starfsfólk 28 daga orlof og 12,07% orlofslaun.  

Eftir 10 ár í sama fyrirtæki fær starfsfólk 30 daga orlof og 13,04% orlofslaun.

Bent skal á að frá og með 1. maí 2025 jókst orlofsávinnsla hjá starfsfólki sem unnið hefur í 5 ár í sama fyrirtæki í 28 virka daga og 12,07% orlofslaun.

Tekið skal fram að þann 1. maí 2024 breytist orlofsávinnsla hjá starfsfólki sem hafði náð 22 ára aldri og starfað í 6 mánuði í sama fyrirtæki, en þá átti viðkomandi starfsfólk rétt á orlofi í 25 daga og orlofslaunum sem námu 10,64%. Jafnframt jukust orlofsréttindi starfsfólks sem unnið hafði í 5 ár í sama fyrirtæki í 26 virka daga og 11,11% orlofslaun. Um er að ræða breytingu á orlofi sem kom til töku á orlofsárinu sem hófst 1. maí 2025. 

Sjá nánar í 4. kafla í kjarasamningi SGS og Samtaka atvinnulífsins.

Ríkið

Lágmarksorlof er 30 dagar (240 stundir) miðað við fullt starf. Ávinnsla orlofs er hlutfallsleg miðað við starfshlutfall og starfstíma starfsmanns. Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl. 

Starfsmaður skal fá 13,04% orlofsfé á yfirvinnu og álagsgreiðslur.

Starfsmaður á föstum mánaðarlaunum fær greidd dagvinnulaun í orlofi miðað við meðaltal starfshlutfalls á orlofsárinu. Á vaktaálag starfsmanna í reglubundinni vaktavinnu reiknast ekki orlofsfé, heldur halda starfsmenn vaktaálagsgreiðslum í sumarorlofi. 

Sjá nánar í 4. kafla í kjarasamningi SGS við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.

Sveitarfélög

Lágmarksorlof er 30 dagar (240 stundir) miðað við fullt starf. Ávinnsla orlofs er hlutfallsleg miðað við starfshlutfall og starfstíma starfsmanns. Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl. 

Starfsmaður skal fá 13,04% orlofsfé á yfirvinnu og álagsgreiðslur.

Starfsmaður á föstum mánaðarlaunum fær greidd dagvinnulaun í orlofi miðað við meðaltal starfshlutfalls á orlofsárinu. Á vaktaálag starfsmanna í reglubundinni vaktavinnu reiknast ekki orlofsfé, heldur halda starfsmenn vaktaálagsgreiðslum í sumarorlofi. 

Sjá nánar í 4. kafla í kjarasamningi SGS við Samtök sveitarfélaga.

Hér má sjá upplýsingar um orlofsuppbót/persónuuppbót