Orlofsuppbót/persónuuppbót 2024

Eining-Iðja vill minna félagsmenn á rétt sinn á að fá greidda orlofsuppbót/persónuuppbót, en það er föst fjárhæð sem atvinnurekendum er skylt að greiða starfsfólki sínu í maí/júní ár hvert. Uppbótin miðast við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, inniheldur orlof og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.

  • Almennur vinnumarkaður
    • Orlofsuppbót er 58.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. júní. Á vef SGS má nálgast reiknivél sem reiknar orlofsuppbót út frá starfshlutfalli og starfstíma.
  • Ríki
    • Ekki hefur verið samið um fjárhæð uppbótarinnar. Á árinu 2023 var orlofsuppbótin 56.000 kr. miðað við fullt starf.  Uppbótin greiðist 1. júní.
  • Sveitarfélög
  • Ekki hefur verið samið um fjárhæð uppbótarinnar. Á árinu 2023 var persónuppbót 55.700 kr. miðað við fullt starf. Uppbótin á að koma til greiðslu 1. maí ár hvert.

Sjá nánar, m.a. töflur sem sýna upphæð orlofsgreiðslu miðað við starfshlutfall og starfstíma