Óskilamunir úr íbúðum - Gleymdir þú einhverju?

Félagið vill benda á að á skrifstofunni á Akureyri er töluvert af óskilamunum sem komið hafa úr íbúðum félagsins á höfuðborgarsvæðinu undanfarna mánuði.

Félagsmenn sem kannast við að hafa gleymt einhverju, endilega komið við sem fyrst og athugið hvort þið eigið eitthvað af þessum óskilamunum. Einnig er hægt að hringja á skrifstofuna á Akureyri í síma 460 3609 til að kanna málið.

Mánudaginn 2. október nk. förum við með þessa hluti í Rauða krossinn.