Ráðgjafi í starfsendurhæfingu á Akureyri

Vert er að minna á að umsóknarfrestur er til 15. júní nk. og sótt er um á alfred.is. VIRK í samvinnu við Einingu–Iðju leitar að ráðgjafa á sviði starfsendurhæfingar. Um er að ræða samvinnuverkefni stéttarfélaga á Eyjafjarðarsvæðinu og VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og einstakt tækifæri til þátttöku í þróun og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar á vinnumarkaði.

Helstu verkefni

  • Ráðgjöf, stuðningur og hvatning við einstaklinga með skerta starfsgetu.
  • Upplýsingaöflun, skráning og mat samkvæmt gildandi verkferlum.
  • Umsjón og eftirfylgd með einstaklingsbundnum áætlunum sem gerðar eru í samvinnu við þverfagleg teymi VIRK.
  • Vinnur í nánu samstarfi við sérfræðinga VIRK, fagaðila í starfs- endurhæfingu og vinnustaði.
  • Samskipti við stéttarfélög og atvinnurekendur.

Menntunar- og hæfnikröfur

  • Háskólamenntun á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda.
  • Víðtæk reynsla og þekking á sviði einstaklingsráðgjafar og/eða starfs- endurhæfingar.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund.
  • Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Skipulagshæfni og kostnaðarvitund.
  • Góð þekking á vinnumarkaði.
  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti

Ráðgjafar VIRK starfa hjá Einingu-Iðju samkvæmt samningi við VIRK. Að VIRK standa öll helstu samtök launamanna og atvinnurekanda á vinnumarkaði. Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga í kjölfar veikinda eða slysa með árangursríkri starfsendurhæfingarþjónustu. VIRK hefur í samstarfi við fagaðila, fyrirtæki og stofnanir skilað samfélagslegum ávinningi með aukinni þátttöku einstaklinga á vinnumarkaði og er leiðandi í rannsóknum og þróun á sviði starfsendurhæfingar.

Nánari upplýsingar um Einingu–Iðju er að finna á ein.is og um VIRK á virk.is.

Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um störf.

Upplýsingar veitir Jakobína H. Árnadóttir, jakobina@lidsauki.is. Umsóknarfrestur er til 15. júní nk. og sótt er um á alfred.is. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og einnar blaðsíðu kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur starfsins.