Rafræn félagsskírteini komin í notkun

Nú er hægt að nálgast rafræn félagsskírteini á Mínum síðum félagsins. Það getur verið hentugt að hafa skírteinið í símanum ef félagsmenn vilja nýta sér þá afslætti sem í boði eru og fram koma á MÍNUM SÍÐUM

Félagsmenn njóta veglegra tilboða og sérkjara hjá fyrirtækjum og samstarfsaðilum víða um land. Gildir aðeins gegn framvísun félagsskírteinis. Gildir ekki með öðrum tilboðum.

Það er bæði hægt að sækja skírteinið á Mínum síðum í gegnum tölvu og snjallsíma.

Fyrir Android
Ef þú ert með Android verður þú að niðurhala í símann þinn SmartWallet. Síðan getur þú einfaldlega opnað myndavélina inni í appinu og skannað inn QR kóðann sem finna má á Mínum síðum.

Fyrir Apple
Ef þú ert með Apple getur þú notað Apple Wallet appið sem er þegar í símanum þínum. Einfaldlega opnaðu myndavélina á símanum þínum og skannaðu QR kóðann sem finna má á Mínum síðum.