Rafrænn fundur fyrir félagsmenn á Dalvík og í Hrísey - skráning hér

Í dag mun félagið halda rafrænan fund fyrir félagsmenn á Dalvík og í Hrísey. Fundurinn mun byrja kl. 18:00 og verður túlkaður á pólsku.

Félagsmenn sem ætla að mæta þurfa að skrá sig hér fyrir neðan til að hægt verði að senda viðkomandi félagsmanni hlekk á fundinn. Leiðbeiningar munu fylgja með í þeim pósti. 

Á morgun verður samskonar fundur fyrir félagsmenn í Fjallabyggð og á fimmtudaginn fyrir félagsmenn á Grenivík.

Dagskrá:

  1. Undirbúningur kjarasamninga.
  2. Ný Gallup könnun félagsins,
  3. Önnur mál.