How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?
Vert er að minna aftur á að stjórnir Lands-, Ríkis-, Sjó- og Sveitamenntar samþykktu breytingar á reglum um úthlutun einstaklingsstyrkja. Nýju reglurnar tóku gildi 1. ágúst sl. og gilda um öll námskeið sem hófust eftir þann tíma. Helstu breytingarnar lúta að styrkjum vegna tungumálanáms og náms erlendis.
Hámark á styrkjum til tungumálanáms lækkaði
Samkvæmt nýju reglunum var hámarksstyrkur sem einstaklingur getur fengið vegna tungumálanáms 180.000 krónur á almanaksári. Þá er ekki lengur heimilt að nýta uppsafnaðan rétt til að standa undir slíkum námskostnaði.
Takmarkanir á námi erlendis
Einnig varð breyting á styrkjum til náms erlendis. Slíkt nám er ekki lengur styrkt, nema þegar um er að ræða nám við viðurkennda háskóla.
Ákvörðunin var meðal annars byggð á því að sjóðurinn er innlendur og fjármagnaður með iðgjöldum samkvæmt kjarasamningum. Markmið hans er að styrkja hæfni einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði.
Nýju reglurnar eru liður í endurskoðun á starfsemi sjóðanna með það að markmiði að tryggja skilvirkari úthlutun styrkja og betri nýtingu fjármuna.