Réttlát umskipti á vinnumarkaði

Fyrr í vikunni fór fram morgunverðarfundur um réttlát umskipti á vinnumarkaði á vegum ASÍ, BHM og BSRB. 

Loftslagsbreytingar munu hafa víðtæk áhrif á samfélagið, efnahag, atvinnulíf og vinnumarkað. Það hver áhrif breytinganna verða er undir því komið hvaða stefna verður mörkuð og hvort tryggt verði að aðgerðir í baráttunni gegn loftslagsbreytingum séu samræmdar markmiðum um starfs- og afkomuöryggi og góð lífskjör.

Á fundinum var fjallað um hugmyndafræðina sem réttlát umskipti byggja á og hvaða þýðingu þau hafa fyrir íslenskt samfélag, vinnumarkað, efnahag og velferð launafólks. Leitast var við að varpa ljósi á núverandi stefnu og aðgerðir stjórnvalda og hvað uppá vantar til að markmið um réttlát umskipti náist.

Á fundinum fluttu erindi þau Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs, Auður Alfa Ólafsdóttir, sérfræðingur hjá ASÍ, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB, og Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM.

Á heimasíðu BHM má finna eftirfarandi í umfjöllun um fundinn þar sem segir m.a. að kjarasamningar eru mikilvægasti snertiflötur aðila vinnumarkaðarins og á vettvangi kjaraviðræðna á sér stað yfirgripsmikil greining á vinnumarkaði og samfélaginu. Vel er hægt að bæta þar inn greiningu á þáttum er varða græn umskeipi, enda eru réttlát umskipti á ábyrgð okkar allra.

Fjallað var á fundinum um hugmyndafræðina sem réttlát umskipti byggja á og hvaða þýðingu þau hafa fyrir íslenskt samfélag, vinnumarkað, efnahag og velferð launafólks. Fundurinn var haldinn í tilefni af og í aðdraganda að þríhliða viðburði norrænna stjórnvalda og aðila vinnumarkaðar sem haldinn verður í Hörpu 1. desember nk.

Framsögumenn voru á einu máli um að meira þyrfti að koma til í orkuskiptum en ívilnanir til kaupa á rafmagnsbílum. Ekki hafi verið varið nægilega miklu fé til uppbyggingar almenningssamgangna, sem væru mikilvægur liður í sameiginlegum loftlagsmarkmiðum. Þá komu fram þau sjónarmið að fram að þessu hafi athyglinni ekki verið beint nægilega að þeim atvinnugreinum sem losa mest, sjávarútvegi, landbúnaði og álframleiðslu. Samvinnu allra hagaðila þurft til svo hægt sé að tala um réttlát umskipti og ásetningurinn þarf að vera óumdeildur.

Rýna þarf í kjarasamninga með grænum gleraugum
Losun heimila er að mestu í formi útblásturs bifreiða og eins og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB benti á, þá nægir okkur ekki að flokka úrgang heima fyrir og í vinunni til að ná árangri, meira þurfi til. Auður Alfa sagði að halda þyrfti rétt á spilunum því umskipti gætu falið í sér óréttlæti ekki síður en tækifæri. Áhrifin þurfi að vera til góðs fyrir launafólk. Sigríður Ingibjörg ræddi um að stefna stjórnvalda í loftlagsmálum þurfi að fela í sér áform um fjölgun grænna starfa.

Í þessu samhengi benti Kolbrún á að fá þyrfti skýrari aðferðarfræði frá stjórnvöldum varðandi losunarbókhald og útreikning á kolefnisspori fyrir allar stærðir og gerðir atvinnurekstrar. Hún benti á að hægt væri að fara í tilteknar aðgerðir strax, s.s. að hefja formlegt samstarf um réttlát umskipti þó stærri aðgerðir krefjist þróunar og yfirlegu. Verkefni framundan er að innleiða hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar á öllum sviðum og rýna í kjarasamninga með grænum gleraugum.

Í lokin var pallborð með forystufólki heildarsamtakanna þriggja; Finnbirni A. Hermannssyni, forseta ASÍ, Sonju Ýr Þorbergsdóttur, formanni BSRB og Kolbrúnu Halldórsdóttur, formanni BHM.

Fráfarandi framkvæmdastjóri Landverndar, Auður Önnu Magnúsdóttir stýrði pallborði. 

Horfa/hlusta á fund