Réttlát umskipti á vinnumarkaði - morgunverðarfundur í streymi

Hvaða áhrif hafa loftslagsbreytingar á störf og lífskjör launafólks og munu markmið stjórnvalda um réttlát umskipti nást?

Í aðdraganda þríhliða fundar norrænna stjórnvalda og aðila vinnumarkaðar um réttlát umskipti, gangast BHM, BSRB og ASÍ fyrir sameiginlegum morgunverðarfundi í salnum VOX Club á Hótel Hilton Nordica á morgun, þriðjudaginn 14. nóvember, kl. 8:30 til 10:00. Beint streymi verður af fundinum fyrir þau sem komast ekki á staðinn.

Loftslagsbreytingar munu hafa víðtæk áhrif á samfélagið, efnahag, atvinnulíf og vinnumarkað. Það hver áhrif breytinganna verða er undir því komið hvaða stefna verður mörkuð og hvort tryggt verði að aðgerðir í baráttunni gegn loftslagsbreytingum séu samræmdar markmiðum um starfs- og afkomuöryggi og góð lífskjör.

Á fundinum verður fjallað um hugmyndafræðina sem réttlát umskipti byggja á og hvaða þýðingu þau hafa fyrir íslenskt samfélag, vinnumarkað, efnahag og velferð launafólks. Leitast verður við að varpa ljósi á núverandi stefnu og aðgerðir stjórnvalda og hvað uppá vantar til að markmið um réttlát umskipti náist.

Dagskrá:
Erindi flytja Halldór Þorgeirsson formaður Loftslagsráðs, Auður Alfa Ólafsdóttir, sérfræðingur hjá ASÍ, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB, og Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM.

Í lokin verður pallborð með forystufólki heildarsamtakanna þriggja; Finnbirni A. Hermannssyni, forseta ASÍ, Sonju Ýr Þorbergsdóttur, formanni BSRB og Kolbrúnu Halldórsdóttur, formanni BHM.

Fráfarandi framkvæmdastjóri Landverndar, Auður Önnu Magnúsdóttir stýrir pallborði.