Á heimasíðu VIRK eru allar almennar upplýsingar um starfsemi VIRK og starfendurhæfingarferilinn, upplýsingar fyrir atvinnurekendur og þjónustuaðila VIRK. Auk þess má finna allar helstu grunnupplýsingar um VIRK, viðtöl við atvinnurekendur og þjónustuaðila og reynslusögur þjónustuþega.
Reynslusögur notenda gefa mikilvægar upplýsingar um þjónustu ráðgjafa stéttarfélaganna og VIRK. Um er að ræða stutt viðtöl við einstaklinga sem hafa notið góðs af þjónustunni.
Hér má finna reynslusögur þjónustuþega sem birst hafa á heimasíðu VIRK
*****
Fimm VIRK ráðgjafar eru starfandi í Eyjafirði; Halla Sif, Helga Þyri, Katla, Nicole og Svanborg Bobba. Ráðgjafarnir starfa fyrir öll stéttarfélögin á svæðinu. Ráðgjafarnir hafa aðsetur á skrifstofu Einingar-Iðju á 2. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri. Hægt er að ná í ráðgjafana í síma 535 5700.
Orri Stefánsson starfar sem Atvinnulífstengill hjá VIRK og starfar fyrir öll stéttarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu. Hann er með aðsetur á skrifstofu FVSA á 3. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri.